Stórmyndin The Disaster Artist
The Disaster Artist er frábær gamanmynd sem að enginn ætti að láta framhjá sér fara
Í kvikmyndinni The Disaster Artist þá fáum við að skyggjast á bakvið tjöldin þegar maður að nafni Tommy Wiseau er að gera myndina The Room sem kom út árið 2003 en þessi mynd hefur fengið á sig stimpilinn að vera versta mynd allra tíma. Það eru frábærir leikarar sem að fara með aðalhlutverkin í þessari frábæru mynd en með aðalhlutverkin fara James Franco, Dave Franco, Seth Rogen, Alison Brie og Ari Graynor. Þess má geta að James Franco leikstýrir kvikmyndinni samhliða því að fara með aðalhlutverkið og á sunnudagsinn s.l. þá hlaut hann Golden Globe verðlaunin fyrir leik sinn í The Disaster Artist en myndin er kominn í sýningu.