Gleymdist lykilorðið ?

I Am Number Four

Frumsýnd: 18.2.2011
Dreifingaraðili: SAMfilm
Tegund: Hasar, Vísindaskáldskapur, Ævintýri
Lengd: 1h 40 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Þrír eru látnir. Hver er sá fjórði? Leikstjórinn D.J. Caruso kemur hér með spennuþrungna hasarmynd um óvenjulegan ungling, John Smith (Alex Pettyfer).

Hann er á flótta undan miskunarlausum óvinum sem vilja hann feigan.

John breytir auðkennum sínum, flytur á milli borga og er því alltaf nýi gaurinn með enga fortíð. Í litlum bæ í Ohio, núverandi heimabæ hans, upplifir John óvæntar tilfinningar, fyrstu ástina. Kraftmikil reynsla sem hefur áhrif á tengsl hans við þá sem deila örlögum hans.