Gleymdist lykilorðið ?

Total Recall

Frumsýnd: 8.8.2012
Dreifingaraðili: Max Dreifing
Tegund: Hasar, Vísindaskáldskapur, Spenna
Lengd: 1h 58 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Framtíðartryllir, byggður á einni af smásögum Philips K. Dick, þar sem raunveruleiki, draumar og ímyndun renna saman í eitt. Douglas Quaid er ósköp venjulegur maður sem vinnur í verksmiðju og á sér ágætt líf ásamt hinni fögru eiginkonu sinni, Lori. Samt er eins og eitthvað vanti og stundum finnst Douglas eins og líf hans sé of venjulegt. Hann langar í meiri spennu.

Dag einn ákveður hann að heimsækja fyrirtækið Rekall, en það sérhæfir sig í að senda fólk í hugarferðalag hvert sem það vill fara þótt staðreyndin sé að ferðalagið er bara blanda af draumi og ímyndun þess sem í það fer.

Douglas ákveður að skella sér í hugarferðalag en þegar verið er að setja ferðalag hans af stað verður einhvers konar bilun í búnaðinum þannig að hann fer hvergi. Þess í stað á hann allt í einu fótum sínum fjör að launa á flótta undan útsendurum yfirvalda sem vilja greinilega þagga niður í honum fyrir fullt og allt. Douglas er þessi atburðarás algjörlega hulin ráðgáta því hann veit ekki til þess að hann hafi gert nokkuð af sér.

Hvað er að gerast? Getur verið að Douglas sé í raun að upplifa atburðarásina eins og hún er eða er þetta kannski allt saman ímyndun eða draumur?

PUNKTAR:

• Eins og flestir vafalaust vita þá er þessi mynd byggð á sömu sögu og samnefnd mynd frá árinu 1990 sem skartaði Arnold Schwarzenegger í aðalhlutverki og var í leikstjórn Pauls Verhoeven. Sú mynd náði miklum vinsældum.

• Total Recall kostaði um 200 milljónir dollara í framleiðslu.