Gleymdist lykilorðið ?

Jurassic World

Frumsýnd: 10.6.2015
Dreifingaraðili: Myndform
Tegund: Hasar, Ævintýri
Lengd: 2h 04 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára
|

Hér er á ferðinni glænýtt framhald á einni vinsælustu kvikmyndaseríu allra tíma sem stórmeistarinn Steven Spielberg kom af stað. Jurassic World gerist á eyjunni Isla Nublar sem er sögusvið fyrstu myndarinnar þar sem Júragarðurinn var fyrst reistur. Aldrei tókst honum þá að opna sökum eftirminnilegra óhappa á prufustiginu og varð eyjan snöggt yfirtekinn af risaeðlum, af öllum stærðum og gerðum. Nú eru tuttugu og tvö ár liðin frá þeim atburðum og nú hefur verið opnaður nýr, miklu stærri og fjölbreyttari garður: Jurassic World. Viðskiptin ganga stórvel þangað til að nýræktuð risaeðlutegund gerir allt vitlaust og ógnar lífi fleiri hundruð manna. Sem betur fer er varnaráætlun í boði og er þar á meðal komið að vel tömdum snareðlum og fleiri tegundum að berjast gegn þeim nýju. Hefst þá hasarinn...