Gleymdist lykilorðið ?

Amma Hófí

Frumsýnd: 6.7.2020
Dreifingaraðili: Myndform
Tegund: Gaman
Lengd: 1h 35 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Eldri borgararnir Hófí og Pétur eru olnbogabörn í kerfi sem hefur lítið gagn af þeim lengur. Þau eru orðin leið á aðbúnaðinum á elliheimilinu og ræna banka til að hafa efni á að kaupa sér litla íbúð. Ýmis ljón eru í vegi þeirra og Hófí og Pétri lendir saman við harðasta handrukkara bæjarins og skósveina hans. Sem betur fer er erfitt að kenna gömlum hundum að sitja og Hófí og Pétur eru hörðustu glæpamenn elliheimilisins, þannig að þau eru ekkert á því að sitja að óþörfu.