Gleymdist lykilorðið ?

Mile 22

Frumsýnd: 20.8.2018
Dreifingaraðili: Myndform
Tegund: Hasar
Lengd: 1h 34 min
Aldurstakmark: Bönnuð innan 16 ára
|

Hér segir frá sérsveitarmanninum James Silva sem fær það erfiða og vandasama verkefni að smygla asískum lögreglumanni úr landi sínu, en sá hafði leitað til bandaríska sendiráðsins um vernd þar sem hann býr yfir leynilegum upplýsingum sem tengjast eiturvopnaframleiðslu og höfðu aflað honum dauðadóms hjá eigin stjórnvöldum. Verkefnið virðist nánast óframkvæmanlegt því sendiráðið er umkringt þungvopnuðum farartækjum og mönnum sem hefur verið fyrirskipað að fanga eða drepa flóttamanninn um leið og hann reynir að yfirgefa sendiráðið. En James leggur samt í hann ásamt sínu fólki og veit sem er að til að verkefnið heppnist má hann ekki gera ein einustu mistök...