Gleymdist lykilorðið ?

Kassatröllin

The Boxtrolls, 2014

Frumsýnd: 17.10.2014
Dreifingaraðili: Myndform
Tegund: Gaman, Ævintýri, Teiknimynd
Lengd: 1h 37 min
Aldurstakmark: Leyfð
|

Kassatröllin segir frá ungum dreng, Eggja, eins og hann er kallaður, sem alist hefur upp í holræsum bæjarins Ostabrúar í góðri umsjá hinna sérkennilegu kassatrölla, en þau eru frekar ófríð lítil tröll sem hafast við í kössum og ef þau verða hrædd eða þurfa að fela sig geta þau dregið bæði höfuð og útlimi inn í kassann, svona svipað og skjaldbökur gera. Kassatröllin eru frekar illa liðin af hinum mannlegu íbúum Ostabrúar enda koma þau upp úr holræsunum á næturnar til að ná sér í mat og reyndar hvað eina sem á vegi þeirra verður, og geta þá um leið hrætt líftóruna úr þeim íbúum bæjarins sem eru svo óheppnir að hitta þau. Samt eru kassatröllin eiginlega alveg meinlaus og í raun sjálf alveg skíthrædd við fólk. Vandamál kassatröllanna verða hins vegar alvarleg þegar náungi einn sem þolir ekki kassatröll, finnur þeim allt til foráttu og dreifir um þau ósönnum og ljótum sögum, mætir á svæðið í sérhannaðri útrýmingarvél sem er sérstaklega gerð til að veiða og eyða kassatröllum hvar sem til þeirra næst. Það kemur auðvitað í hlut Eggja að bregðast við þessari vá og finna leið til að stöðva bæði útrýmingarvélina og stjórnanda hennar áður en það er orðið of seint...